Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


 1. gr.   Heiti sjóðsins og aðsetur

1.1.       Sjóðurinn heitir Styrktar- og sjúkrasjóður Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM).

1.2.       Sjóðurinn er stofnaður með sameiningu Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands og sjúkrasjóða þeirra félaga.

1.3.       Sjóðfélagar eru þeir sem greitt hafa, eða greidd hafa verið fyrir, fullnægjandi iðgjöld til sjóðsins að mati sjóðstjórnar.

1.4.       Sjóðurinn er eign VM.

1.5.       Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr.   Verkefni sjóðsins

Verkefni sjóðsins eru:

2.1.       Að greiða dagpeninga þeim sjóðfélögum sem missa vinnutekjur sínar vegna eigin veikinda eða slysa, eða veikinda og/eða slysa maka og barna 18 ára og yngri.

2.2.       Að greiða dánarbætur vegna andláts sjóðfélaga.

2.3.       Að styrkja með fjárframlögum sjóðfélaga og hverja þá starfsemi er miðar að endurhæfingu, sérstakri læknismeðferð, slysavörnum eða öðrum sambærilegum verkefnum, eftir ákvörðun sjóðstjórnar hverju sinni.

2.4.       Að veita tímabundin lán til sjóðfélaga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

3. gr.   Tekjur sjóðsins

3.1.       Tekjur sjóðsins eru skv. kjarasamningum félagsmanna VM, sbr. 7. gr. laga nr. 19/1979, samningsbundin gjöld atvinnurekanda til sjóðsins.

3.2.       Vaxtatekjur og annar arður.

3.3.       Gjafir, framlög og styrkir.

3.4.       Aðrar tekjur.

4. gr.   Stjórn og rekstur sjóðsins

4.1.       Stjórn sjóðsins skal skipuð 5 mönnum. Formaður félagsins er formaður stjórnar og stjórn félagsins skipar einn fulltrúa. Aðalfundur félagsins kýs þrjá fulltrúa og skal kosning fara fram á sama tíma og stjórnarkjör í félaginu.

4.2.       Stjórnin ber ábyrgð á rekstri og fjárreiðum sjóðsins. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.

4.3.       Stjórnun sjóðsins skal vera í samræmi við þau sjónarmið sem gilda skv. almennum stjórnsýslureglum.

4.4.       Heimilt er að fela skrifstofu VM fjárreiður og umsjón með sjóðnum. Þó skal halda bókhaldi sjóðsins aðskildu frá öðrum fjárreiðum VM.

4.5.       Ávallt skulu liggja fyrir gögn um rétt sjóðfélaga til greiðslu úr sjóðnum.

4.6.       Sjóðstjórn setur reglur um eftirlit með greiðslum úr sjóðnum.

4.7.       Þegar farsóttir geisa getur sjóðstjórnin leyst sjóðinn undan greiðsluskyldum sínum um stundarsakir.

4.8.       Stjórnin getur ákveðið að fella niður styrki og lækka dagpeninga um stundarsakir ef afkomu sjóðsins virðist hætta búin.

4.9.       Sjóðnum er heimilt að eiga fasteignir undir starfsemi sína og til hagsbóta fyrir sjóðfélaga, til hvíldar og hressingar.

4.10.   Til að ná markmiðum sjóðsins er stjórn hans heimilt að kaupa hóptryggingu í þágu sjóðfélaga, sem komi í stað núverandi reglugerðar að hluta eða öllu leyti.                               

5. gr.   Reikningar sjóðsins og endurskoðun

5.1.       Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarfélagi í samræmi við góða endurskoðunarvenju sem í gildi er á hverjum tíma.                                                                                                         

5.2.       Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar sjóðsins skulu lagðir fram á aðalfundi félagsins áritaðir af löggiltum endurskoðanda.         

5.3.       Í ársreikningi eða skýringum með honum skal sundurliða sérstaklega kostnað vegna hvers og eins bótaflokks skv. gr. 9, 10 og 11.

5.4.       Um bókhald reikninga og endurskoðun fer að öðru leyti skv. viðmiðunarreglum ASÍ eins og þær eru á hverjum tíma sbr. 3. mgr. 44. gr. laga ASÍ.

5.5.       Fimmta hvert ár skal stjórn sjóðsins fá tryggingafræðing eða löggiltan endurskoðanda til að meta framtíðarstöðu sjúkrasjóðsins með tilliti til þess að hann geti staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt reglugerð þessari.

6. gr.   Ávöxtun sjóðsins

6.1.       Heimilt er að ávaxta fé sjóðsins með eftirfarandi hætti:

6.1.1.         Í ríkisbréfum eða skuldabréfum sem tryggð eru með ábyrgð ríkissjóðs.

6.1.2.         Með kaupum á markaðsskráðum verðbréfum.

6.1.3.         Í bönkum og sparisjóðum.

6.1.4.         Í fasteignum tengdum starfsemi sjóðsins.

6.1.5.         Á annan þann hátt er stjórn sjóðsins metur tryggan.

7. gr.   Tilhögun greiðslna úr sjóðnum

7.1.       Umsóknir um dagpeninga og aðra styrki skulu vera skriflegar á þar til gerð eyðublöð og þeim skulu fylgja umbeðin gögn sjóðstjórnar hverju sinni.

7.2.       Dagpeningar eru greiddir út einu sinni í mánuði.

7.3.       Afgreiðsla sjóðsins skal vera á skrifstofu VM.

7.4.       Iðgjöld til sjóðsins endurgreiðast ekki.

8. gr.   Réttur til dagpeninga, bóta og styrkja

8.1.       Þeir sem hafa greitt og verið er að greiða fyrir fullnægjandi iðgjöld til sjóðsins þegar réttur til aðstoðar myndast hvort sem iðgjaldaskyldan er kjarasamningsbundin eða tryggð með samkomulagi við sjóðinn þar sem fram kemur starfsbundinn launaréttur viðkomandi í veikinda- og slysatilfellum.

8.2.       Sjóðfélagi sem fer í lögbundið fæðingarorlof eða á atvinnuleysisbætur, heldur á meðan réttindum til styrkja og bóta enda hafi viðkomandi ákveðið að viðhalda rétti sínum með greiðslu félagsgjalds. 

8.3.       Missi sjóðfélagi atvinnuleysisbætur vegna veikinda á hann rétt á bótum sem nemi sömu fjárhæð og atvinnuleysisbæturnar numu yfir sama tímabil.

8.4.       Þeir sem greitt hafa til sjóðsins í a.m.k. 60 mánuði og hætta störfum vegna aldurs eða örorku eiga rétt til styrkja næstu 12 mánuði frá síðustu iðgjaldagreiðslu.

9. gr.   Greiðsla dagpeninga vegna launataps samkv. 2. gr. lið 2.1.

9.1.       Dagpeningar í veikinda- og slysaforföllum eru greiddir í allt að 180 daga eða 6 mánuði að loknum greiðslum skv. veikinda- og slysaréttarákvæðum kjarasamninga.

9.2.       Dagpeningar í veikinda- og slysaforföllum barna og maka greiðast í 90 daga frá þeim tíma sem sjóðfélagi hefur verið launalaus í 10 daga. Komi til greiðsluskyldu er greitt frá fyrsta degi launamissisins.

9.3.       Upphæð dagpeninga er 90% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af síðustu 6 mánuði fyrir veikindi eða slys Sjóðsstjórn getur þó ákveðið hærri hlutfallstölu.

9.4.       Dagpeningar greiðast ekki þegar bótaskylda vegna slyss eða atvinnusjúkdóms fellur á tjónvald og bætur fást greiddar skv. skaðabótalögum úr hendi hans eða á grundvelli ábyrgðartryggingar.

9.5.       Dagpeningar greiðast ekki, þegar um varanlega örorku eða ellihrumleik er að ræða.

9.6.       Við sérstakar aðstæður er heimilt að greiða sjóðfélaga, sem missir vinnu sína vegna þess að hætt er að starfrækja viðkomandi vinnustað af óðviðráðanlegum ástæðum og á ekki bótarétt annarsstaðar, dagpeninga í allt að 90 daga.

9.7.       Vegna meðferðar við áfengis – og/eða fíkniefnasýki er heimilt að greiða dagpeninga í sama dagafjölda og viðkomandi var í meðferð, enda hafi viðkomandi notið meðferðar á viðurkenndri stofnun.

9.8.       Heimilt er að fjárhæð dagpeninga taki mið af iðgjaldsprósentu ásamt veikinda- og slysaréttarákvæðum viðkomandi kjarasamnings.

9.9.       Stjórn sjóðsins er heimilt að brúa tímabundinn vanda sjóðfélaga sem á bótarétt vegna slyss eða atvinnusjúkdóms, ef verulegur dráttur verður á uppgjöri, með því að veita honum lán að sömu fjárhæð og bætur úr sjóðnum myndu ella nema. Slík lán verða aðeins veitt gegn tryggingu um endurgreiðslu.

9.10.   Sjóðstjórn ákveður hámark dagpeninga þó að lágmarki 250.000 kr./mán.

9.11.   Samanlagður fjöldi daga samkv. liðum 9.1. til og með 9.7. geta þó aldrei orðið fleiri en 180 ( 6 mánuðir ) á hverju 12 mánaða tímabili. Réttur til dagpeninga endurnýjast þegar greitt hefur verið fullnægjandi iðgjald v/viðkomandi til sjóðsins í 6 mánuði.

9.12.   Réttur til dagpeninga og annarra greiðslna úr sjóðnum fellur niður sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá því að rétturinn stofnaðist.

9.13.   Heimilt er að miða dagpeninga við meðaltal launa síðustu 12 mánaða í stað 6 mánaða, hafi tekjur sjóðfélaga breyst verulega til hækkunar eða lækkunar á tímabilinu.

 10. gr.  Greiðsla dánarbóta samkvæmt 2. gr. lið 2.2.

10.1.   Vegna andláts virks og greiðandi sjóðfélaga greiðast dánarbætur til eftirlifandi maka og / eða barna undir 18 ára aldri sem nemi 90% af meðaltali heildarlauna síðustu 3ja starfsmánaða fyrir andlát.

10.2.   Falli sjóðfélagi frá sem er greiðandi til sjóðsins eða hefur greitt til sjóðsins í a.m.k. 60 mánuði áður en hann hætti störfum skal greiða útfararstyrk samkvæmt ákvörðun sjóðstjórnar hverju sinni.

11. gr.  Styrkir til sjóðfélaga samkv. gr. 2.gr. lið 2.3.

11.1.       Endurhæfingar.

11.2.       Ferða og dvalar fjarri heimabyggð vegna veikinda.

11.3.       Forvarna.

11.4.       Kaupa á sjónglerjum, heyrnartækjum og stoðtækjum.

11.5.       Skilgreindra læknisaðgerða.

11.6.       Tækinfrjóvgana og ættleiðinga. 

Stjórn sjóðsins skal í upphafi hvers árs ákveða skilyrði og fjárhæð styrkjanna.

12. gr.  Breytingar á reglugerð

12.1.   Breytingar á reglugerð þessari taka því aðeins gildi, að þær hafi hlotið samþykki aðalfundar VM og ræður einfaldur meirihluti atkvæða. Tillögur til breytinga á reglugerðinni skulu hafa borist stjórn sjóðsins fyrir 1.febrúar ár hvert.

13. gr.  Samþykkt reglugerðarinnar og gildistaka

13.1.   Reglugerðin var samþykkt á stofnfundi VM 14. október 2006 og tekur gildi frá og með 20. október 2006.

13.2.   Um bótarétt sem varð til fyrir gildistöku reglugerðarinnar gilda þær reglur sem voru í hvorum sjóði fyrir sig.

13.3.   Frá og með 20. október eru fjárhæðir styrkja eins og fram kemur á fylgiskjali 1. ,,Styrkir til sjóðfélaga”.

 

 

Þannig samþykkt á stofnfundi VM 14. okt. 2006

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli