Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


 

Laugardaginn 7. maí 2011 stóð VM fyrir þingi um málefni lífeyrissjóðana á Grand Hótel.

Yfirskrift þingsins var: framtíð lífeyrissjóða – standast loforðin?

Flutt voru fjögur erindi þar sem frummælendur fjölluðu um kosti, galla og stöðu íslenska lífeyriskerfisins. Fundarstjóri var Sigurjón M. Egilsson.

Tæplega 60 félagsmen mættu á þingið og báru upp fjölmargar spurningar um efnið. Almennt má segja að erindi frummælenda þóttu fróðleg og spurningar þinggesta málefnalegar. Erindi frummælenda og svör við fyrirspurnum báru þess vitni að þeir þekktu vel til lífeyrissjóðakerfisins og höfðu á því skoðanir.

Fyrirlesarar voru þau:
Einar Beinteinn Árnason, sem fjallaði um sjálfbærni lífeyriskerfisins og uppgjörsaðferðir.
Ólafur Ísleifsson, sem fjallaði um stöðu lífeyrissjóðanna í gegnum áföll og uppsveiflur.
Lilja Mósesdóttir lýsti sinni sýn á velferðar og lífeyriskerfi.
Marinó Örn Tryggvason fjallaði um spurningar um hvort breyta þyrfti réttindakerfi lífeyrissjóðanna.

 

Erindi Einars Beinteins Árnasonar


Erindi Lilju Mósesdóttir


Erindi Marinós Tryggvasonar


Erindi Ólafs Ísleifssonar

 

Á heimasíu ASÍ er samantekt um lífeyrissjóðina ásamt tenglum á lög og samþykktir
sjá hér

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli