Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Mynd með frétt
28.06.2010

Hefur eitthvað breyst?

Eitt sinn heyrði ég máltæki sem heimfært var upp á Færeyinga. „Nógur er tíminn, alltaf kemur meira af honum“ þessi staðreynd er ein af þeim fáu sem við getum gengið út frá í dag og einnig því að reikningarnir koma örugglega inn um lúguna með sínum eindögum.
Lesa meira

Mynd með frétt
20.04.2010

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis og VM

Ef við sem einstaklingar, ætlum sannarlega að taka þátt í að byggja upp réttlátt samfélag, verðum við að byrja á okkur sjálfum og laga þar til. Það hefur til dæmis lengi verið landlægur andskoti að svíkja undan skatti á Íslandi! Að vinna sem mest svart eða láta vinna fyrir sig, án þess að borga skatt.
Lesa meira

Mynd með frétt
31.03.2010

Ágætu félagsmenn

Nú er aðalfundur VM nýafstaðinn og kosningu til stjórnar félagsins lokið. Tillögur laganefndar, sem skipuð var á aðalfundi VM 2008, voru samþykktar. Sú tilraun var gerð í ár, að senda ársskýrsluna til allra félagsmanna þannig að þeir hafi tök á að kynna sér starf félagsins fyrir aðalfundinn og þá vonandi um leið að vekja upp áhuga manna á starfsemi félagsins.
Lesa meira

Mynd með frétt
22.02.2010

Dómur Félagsdóms vegna félagsmanna VM hjá Norðuráli.

Það sem er mikilvægast í umræðunni um þetta mál er að það voru félagsmennirnir sjálfir hjá Norðuráli sem settu þessa kröfu fram á hendur VM, að það sæi um gerð kjarasamnings fyrir þeirra hönd við Norðurál. Í október 2009 var borgað af 34 félagsmönnum sem störfuðu hjá Norðuráli til VM af um 60 til 70 stöðugildum í vél- og málmtækni hjá fyrirtækinu.
Lesa meira

Mynd með frétt
29.01.2010

Afnotakerfi veiðiheimilda.

Í þessu máli verðum við að nálgast lausnina frá staðreyndum og skynsemi en ekki tilfinningum og óskhyggju sem oftar en ekki skilar mönnum á verri stað en lagt er upp frá.
Lesa meira

Mynd með frétt
19.01.2010

Sjómannaafslátturinn

Við hjá VM teljum afnám sjómannaafsláttarins aðför að launakjörum sjómanna, þessu máli er ekki lokið af okkar hálfu í að verja kaupmátt launa okkar félagsmanna til sjós.
Lesa meira

Mynd með frétt
15.01.2010

Hugleiðingar á nýju ári

Hér á heimasíðunni var gerð óformleg könnun á síðari hluta síðasta árs. Þar var spurt í einfaldri könnun hvort launin dugi fyrir útgjöldum. Niðurstöðurnar eru sláandi þar sem aðeins um 40% svarenda segja launin duga fyrir útgjöldum og um 60 % segja þau ekki duga. Þó að þetta sé óformleg netkönnun sem svarað er af notendum heimasíðunnar þá eru þetta sláandi niðurstöður ef þetta er vísbending um hagi hins almenna félagsmanns VM.
Lesa meira

Mynd með frétt
23.12.2009

Jólapistill formanns

Jólin eru sú hátíð í skammdeginu þegar mikilvægt er að vera með fjölskyldu eða vinum og njóta samvista við þá sem okkur standa nærri. Það er einlæg ósk mín að þið eigið ánægjuleg jól með fjölskyldum ykkar og vinum. Ég óska landsmönnum öllum, félagsmönnum VM og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Lesa meira

Mynd með frétt
13.11.2009

Byggjum réttlátt þjóðfélag

Skattlagningin, sem allir verða óhjákvæmilega að taka á sig á næstu árum, gerir þá kröfu að allir horfi í eigin barm, bæði fyrirtæki og einstaklingar og axli ábyrgð, en reyni ekki að koma sér undan henni.
Lesa meira

Mynd með frétt
07.09.2009

Raunveruleikaflótti

Rekstur bankakerfisins er staðreynd sem ekki þarf að eyða orðum í, en er ekki svipaður rekstur búinn að vera í gangi á allt of mörgum sviðum samfélagsins?
Lesa meira

Mynd með frétt
02.07.2009

Agnes segir spillingarsögur um lífeyrissjóði

Í síðasta pistli sínum „Agnes segir“ heldur Agnes Bragadóttir áfram að fjalla um alla spillinguna sem hún fullyrðir að hafi viðgengist hjá stjórnendum lífeyrissjóðanna.
Lesa meira

Mynd með frétt
26.06.2009

Eitt lítið skref af mörgum

Eftir að hafa hlustað á alla umræðuna í þjóðfélaginu undanfarin ár hjá hagfræðingum, bæði í aðdraganda efnahagsparadísarinnar og á meðan hún stóð yfir, um hagfræðistefnur og síðan leit hagfræðinga að leiðum út úr glundroðanum sem við höfum staðið í eftir hrunið, þá er ég eiginlega að verða þeirrar skoðunar að þessi fræði eigi heima í guðfræðideild háskólans.
Lesa meira

Mynd með frétt
25.05.2009

Hvað er framundan?

Í öllum þeim málum sem ég hef komið að í fyrirtækjum þar sem verið var að færa laun niður, hafa starfsmenn undantekningarlaust haft fullan skilning á aðstæðum í sínu fyrirtæki. Þeir hafa verið tilbúnir til að taka á sig umtalsverðan og jafnvel mikinn niðurskurð á launakjörum sínum og þar með afkomu sinni til að sjá fjölskyldum sínum farborða.
Lesa meira

Mynd með frétt
20.04.2009

Ágætu félagsmenn

Enn er ástandið í þjóðmálunum þannig að óvissan er í aðalhlutverki. Hvað framundan er í atvinnumálum og þar með afkomu landsmanna er okkur öllum efst í huga flesta daga. Þær fréttir sem við fáum af ástandi efnahagsmála heimsins eru ekki til að auka bjartsýnina. Þar sem lítið breytist eru fá tilefni til að líta fram á veginn með jákvæða framtíðarsýn og sjálfsagt verður það þannig næstu misserin.
Lesa meira

Mynd með frétt
20.03.2009

Pistill formanns

Í þeirri miklu umræðu sem á sér stað um lífeyrissjóði landsmanna, stöðu þeirra, fjárfestingastefnu og rekstrarform, ákvað ég að skrifa bréf til framkvæmdastjóra og stjórna tveggja af stærstu lífeyrisjóðum félagsmanna VM. Með þessu vildi ég kalla eftir ákveðnum upplýsingum beint frá sjóðunum sjálfum.
Lesa meira

Mynd með frétt
20.02.2009

100 ár frá stofnun Vélstjórafélags Íslands

Í dag, 20. febrúar, eru 100 ár upp á dag frá stofnun Vélstjórafélags Íslands, en stofndagurinn var 20. febrúar 1909. Saga þessa merka félags sem nær yfir 100 ára sögu þessa lands er tími mestu framfara í sögu okkar. Þar á vélvæðingin mesta þáttinn og þeir menn sem keyrðu og héldu vélum við, til sjós og lands, lögðu grunninn að hagsæld þjóðarinnar.
Lesa meira

Mynd með frétt
06.02.2009

Pistill formanns

Við Íslendingar erum skynsöm þjóð, - nema stundum í kosningum til alþingis! - og getum horft á hlutina af raunsæi, þó að tímabundið valdi það okkur miklum erfiðleikum. Það hefur sýnt sig undanfarið að við erum tilbúin til að takast á við vandann og við munum rísa upp aftur.
Lesa meira

Mynd með frétt
02.01.2009

Áramótakveðja formanns VM

Nú er eitt viðburðarmesta og örlagaríkasta ár í sögu íslenska lýðveldisins liðið. Það hefur markað misþung spor hjá hverju og einu okkar og okkar fjölskyldum. Margir hafa orðið fyrir skaða sem á eftir að hafa áhrif til framtíðar og breyta áformun þeirra um ókomin ár.
Lesa meira

Mynd með frétt
23.12.2008

Pistill formanns

Jólapistill frá Guðmundi Ragnarssyni
Lesa meira

Mynd með frétt
25.11.2008

Pistill formanns

Ræða Guðmundar Ragnarssonar formanns VM á félagsfundi VM þann 19. nóvember 2008
Lesa meira



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli