Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Mynd með frétt
09.08.2010

Golfmót VM - Myndir og úrslit

Golfmót VM var haldið síðast liðinn fimmtudag á golfvellinum Keili í Hafnarfirði.
Lesa meira

28.06.2010

Golfmót VM

Golfmót VM verður haldið fimmtudaginn 5. ágúst á golfvellinum Keili í Hafnarfirði. Mótið er fyrir félagsmenn VM og má hver félagsmaður taka með sér einn gest. Matur er innifalinn í þátttökugjaldi, sem er 5.650 kr. á mann. Skráning á skrifstofu VM í síma 575 9800 eða í tölvupósti: olof.lilja@vm.is
Lesa meira

Mynd með frétt
25.06.2010

Ferð eldri félagsmanna VM vel sótt

Ferð eldri félagsmanna VM var farin fimmtudaginn 24. júní sl. Að þessu sinni var farin söguferð í Borgarfjörð. Ferðin var vel sótt og voru yfir hundrað manns með í för í ár. Heppnaðist ferðin einstaklega vel og ekki spillti blíðskaparveður fyrir, enda voru ferðalangar mjög ánægðir í alla staði.
Lesa meira

Mynd með frétt
16.06.2010

VM styður fjölskylduhjálp Íslands

Á stjórnarfundi VM þann 26. maí sl. ákvað stjórn VM að styrkja Fjölskylduhjálp Íslands um 1,2 milljónir króna. Styrkurinn felur í sér að kaupa eitt merki í söfnunarverkefni Hönd í Hönd fyrir hvern félagsmann.
Lesa meira

10.06.2010

Ferð eldri félagsmanna

Ferð eldri félagsmanna VM verður farin fimmtudaginn 24. júní nk. Að þessu sinni verður farin söguferð í Borgarfjörð. Ferðin er fyrir alla félagsmenn VM 67 ára og eldri og maka þeirra.
Lesa meira

Mynd með frétt
09.06.2010

Launahækkanir í júní

Samkvæmt kjarasamningi VM við SA, Orkuveitu Reykjavíkur, HS-Orku hf, Norðurorku, Faxaflóahafnir og ALCAN (ÍSAL) hækka laun um 2,5 % frá 1. júní 2010. Samkvæmt kjarasamningi VM við Landsvirkjun og Orkubú vestfjarða hækka laun um 11.000 kr. frá 1. júní 2010.
Lesa meira

Mynd með frétt
09.06.2010

Neistinn og heiðranir á sjómannadaginn

Á sjómannadaginn þann 6. júní sl. veitti VM og Tryggingamiðstöðin hf. Neistann í sautjánda sinn. Neistinn er viðurkenning fyrir fyrirmyndar yfirvélstjórastörf og hlaut Bjarni Sveinbjörnsson Neistann í ár, fyrir yfirvélstjórastörf til fyrirmyndar á Árna Friðrikssyni RE 200. Einnig tilnefndi VM Guðfinn Hólm Pétursson vélstjóra, til heiðrunar á sjómannadaginn.
Lesa meira



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli