25.06.10
Ferð eldri félagsmanna VM vel sótt
Ferð eldri félagsmanna VM var farin fimmtudaginn 24. júní sl. Að þessu sinni var farin söguferð í Borgarfjörð.
Ferðin var vel sótt og voru yfir hundrað manns með í för í ár. Heppnaðist ferðin einstaklega vel og ekki spillti blíðskaparveður fyrir, enda voru ferðalangar mjög ánægðir í alla staði.
Farið var í Borgarnes og stoppað á Landnámssetrinu. Þar var snæddur hádegisverður og skoðaðar Landnámssýning og Egilssýning.
Næsti viðkomustaður var á Hvanneyri þar sem Landbúnaðarsafn Íslands og Ullarsetrið voru skoðuð. Loks var boðið uppá kaffi og meðlæti í Landbúnaðarháskólanum.
Eftir það var farið með ánægða ferðalanga til Reykjavíkur og endað á upphafsstað við VM - húsið.
Sjá myndir frá ferðinni hér að neðan.