Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


16.06.10

VM styður fjölskylduhjálp Íslands

Á stjórnarfundi VM þann 26. maí sl. ákvað stjórn VM að styrkja Fjölskylduhjálp Íslands um 1,2 milljónir króna. Styrkurinn felur í sér að kaupa eitt merki í söfnunarverkefni Hönd í Hönd fyrir hvern félagsmann en merkið kostar 300 kr. stk.

Verða merkin send með næsta Tímariti VM til allra félagsmanna VM eða 4.000 merki.

Guðmundur Ragnarsson formaður VM afhenti Ásgerði Jónu, forstöðukonu Fjölskylduhjálparinnar, gjafabréf í dag. Gjafabréfið er 1.200.000 kr. að gjöf til Fjölskylduhjálpar Íslands.

„Aukningin er mjög mikil hjá okkur, við sjáum ekkert fyrir endann á því,“ segir Ásgerður Jóna. Síðasta úthlutun verður þann 30. júní. Eftir það fer Fjölskylduhjálp Íslands í sumarfrí. „Við opnum aftur 18. ágúst og vonum að peningarnir okkar dugi til að halda þetta út fram að áramótum. Það er mikið að gera hjá okkur. Í dag komu 450 fjölskyldur en hver fjölskylda samanstendur að meðaltali af 2,7 manns. Þetta er því heilmargt fólk og við höfum alltaf þörf fyrir stuðning þeirra sem geta hjálpað til. Við erum mjög þakklát VM fyrir þeirra framlag.“

Fjölskylduhjálpin opnaði nýverið vefsíðuna www.fjolskylduhjalpin.net.

Þar getur almenningur styrkt félagið, m.a. með því að fá sms einu sinni í mánuði í símann sinn og styrkja um hundrað krónur á mánuði.

„Einstaklingarnir sem leita til okkar eru margir meðlimir í verkalýðsfélögunum. Við aðstoðum félagsmenn verkalýðsfélaganna og erum ákaflega þakklát VM að styðja okkur í því.“

Guðmundur Ragnarsson, formaður VM afhenti Fjölskylduhjálpinni gjafabréf í dag. Á myndinni er einnig Pétur Sigurhansson, formaður styrktarfélagsins Hönd í hönd. Pétur hefur haft veg og vanda að styrktarmerkjum Fjölskylduhjálparinnar og séð um fjáröflun fyrir samtökin.




Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli