10.06.10
Ferð eldri félagsmanna
Ferð eldri félagsmanna VM verður farin fimmtudaginn 24. júní nk. Að þessu sinni verður farin söguferð í Borgarfjörð. Ferðin er fyrir alla félagsmenn VM 67 ára og eldri og maka þeirra.
Brottför verður frá VM-húsinu, Stórhöfða 25, Reykjavk kl. 09:00. Ekið um Hvalfjörð til Borgarness og stoppað í Hvalfirði eftir veðri og áhuga hópsins.
Komið verður í Borgarnes kl. 11:00 - 11:30 þar verður farið á Landnámssýningu og Egilssýningu.
Eftir sýningar er borðaður hádegismatur í Landnámsetrinu.
Farið er úr Borgarnesi eftir matinn og ekið að Deildartunguhver og hann skoðaður.
Næsti viðkomustaður er Hvanneyri þar sem söfnin eru skoðuð og þar verður boðið uppá kaffisopa með smá meðlæti.
Eftir stoppið á Hvanneyri verður farið til Reykjavíkur og áætlaður komutími þangað er kl. 17:00-18:00