Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


15.01.10

Úrræði fyrir félagsmenn VM í atvinnuleit

Námsstyrkur til þeirra sem verða atvinnulausir eða lenda í hlutastörfum
Grunnrétturinn, kr. 50.000, verður óskertur hjá þeim sem eru atvinnulausir og hafa fullnýtt inneign sína hjá fræðslusjóði VM. Þeir sem eru í hlutastarfi fá sama hlutfall og atvinnuleysi þeirra er.

Endurgreiðsla andvirði félagsgjalda atvinnulausra í VM
Verði félagsmaður VM atvinnulaus í sex mánuði eða lengur, fær hann andvirði félagsgjaldsins fyrir þann tíma endurgreiddan.

IÐAN fræðslusetur veitir upplýsingar um námsúrræði og heldur ýmis námskeið sem félagsmenn VM fá afslátt af. Þar er einnig hægt að fá viðtal við náms- og starfsráðgjafa, fara í raunfærnimat og áhugasviðskannanir. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs: www.idan.is/urraedi

Vinnumálastofnun hefur greitt 50% af námskeiðskostnaði hjá IÐUNNI, upp að ákveðnu hámarki, en félagsmönnum er bent á að fá staðfestingu Vinnumálastofnunar áður en farið er á námskeiðið, IÐAN hefur styrkt atvinnulausa um 25% af námskeiðskostnaði og VM borgar 60% af þeim kostnaði sem félagsmaður þarf að greiða meðan hann á inneign í fræðslusjóði VM.

Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar:
http://www.vinnumalastofnun.is/vinnumarkadsurraedi/

Stuðningur við atvinnulausa til heilsuræktar

Alþýðusamband Íslands, ASÍ, og Samtök heilsuræktarstöðva, SHS, gerðu 6. febrúar 2009 rammasamning um að styrkja einstaklinga í atvinnuleit til að stunda heilsurækt. Atvinnuleysi hér á landi hefur stóraukist undanfarið vegna erfiðs efnahagsástands. Að mati Alþýðusambands Íslands og Samtaka heilsuræktarstöðva eru það ótvíræðir hagsmunir einstaklinganna og þjóðfélagsins alls að atvinnuleitendum sé gefinn kostur á að rækta líkamlegt og andlegt atgervi. Færðar hafa verið sönnur á að regluleg hreyfing sé mikilvæg undirstaða heilbrigðis.
Vegna þessara aðstæðna hafa ASÍ fyrir hönd aðildarfélaga sinna og neðangreindar heilsuræktarstöðvar ákveðið að framlengja gildistíma samningsins til og með 31. desember 2010.
Þau stéttarfélög innan ASÍ sem gerast aðila að samningnum styrkja félagsmenn sína sem hafa misst vinnuna og eru atvinnulausir um kr. 2.000 að lágmarki á mánuði til að stunda heilsurækt. Heilsuræktarstöðvar innan SHS veita þessum viðskiptavinum að lágmarki 50% afslátt á greiðslu af mánaðarkortum stöðvanna.
Atvinnulausum félagsmönnum aðildarfélaga ASÍ sem gerst hafa aðilar að samningnum stendur nú til boða mánaðarkort á sérkjörum með stuðningi félagsins. Algengasta verð er frá 1.500 til 2.000 kr. á mánuði.
Eftirtaldar heilsuræktarstöðvar eru þátttakendur í verkefninu:

Árbæjarþrek, Baðhúsið, Bjarg, Dansrækt J.S.B., Hress, Hreyfing, Sporthúsið, Toppsport, og World Class.

Frí sund- og bókasafnskort fyrir atvinnuleitendur á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar




Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli