Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Afgreiðsla sjóðsins er á skrifstofu VM, Stórhöfða 25, 110 Reykjavík.
Fyrirspurnir berist til Valdísar Þóru Gunnarsdóttur, valdis@vm.is.

Meginverkefni sjóðsins er að:

  • Greiða dagpeninga vegna launataps sjóðfélaga í veikinda- og slysafjarveru.
  • Greiða dagpeninga vegna launataps við umönnun veikra barna eða maka.
  • Greiða dánarbætur og útfararstyrk vegna andláts sjóðfélaga.
  • Styrkja sjóðfélaga vegna endurhæfingar, forvarna, tækjakaupa o.fl.

 

Sjóðfélagar

Samkvæmt reglugerð Styrktar- og sjúkrasjóðs VM eru sjóðfélagar þeir sem hafa greitt og verið er að greiða fyrir fullnægjandi iðgjöld til sjóðsins þegar réttur til aðstoðar myndast.

Sjóðfélagar í fæðingarorlofi

Sjóðfélagi sem fer í lögbundið fæðingarorlof eða á atvinnuleysisbætur, heldur á meðan réttindum til styrkja og bóta enda hafi viðkomandi ákveðið að viðhalda rétti sínum með greiðslu félagsgjalds.

Sjóðfélagar á atvinnuleysisbótum

Missi sjóðfélagi atvinnuleysisbætur vegna veikinda á hann rétt á bótum sem nema sömu fjárhæð og atvinnuleysisbæturnar numu yfir sama tímabil.

Eldriborgarar og öryrkjar

Þeir sem greitt hafa til sjóðsins í a.m.k. 60 mánuði og hætta störfum vegna aldurs eða örorku eiga rétt til styrkja í 12 mánuði frá síðustu iðgjaldagreiðslu.

Umsóknir þurfa að berast sjóðnum fyrir 20. hvers mánaðar til að greiðsla berist þann 1. næsta mánaðar.

VM Fréttir

halldor | 03.09.10
Stjórnin furðar sig á fjárfestingum Framtakssjóðs Íslands og telur að til greina komi að lífeyrissjóðir félagsmanna VM dragi sig út úr sjóðnum.




Pistlar

katrín | 28.06.10

Hefur eitthvað breyst?

Eitt sinn heyrði ég máltæki sem heimfært var upp á Færeyinga. „Nógur er tíminn, alltaf kemur meira af honum“ þessi staðreynd er ein af þeim fáu sem við getum gengið út frá í dag og einnig því að reikningarnir koma örugglega inn um lúguna með sínum eindögum.

 

 

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli