Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Markmið sjóðsins er að efla almenna og faglega þekkingu og hæfni félagsmanna með því að styrkja þá til náms.

 

Umsókn

Réttur til styrkja úr sjóðnum er tvíþættur:

  1. Allir félagsmenn eiga rétt á styrk sem nemur 60% af náms- og ferðakostnaði að hámarki sem nemur grunnstyrk auk uppsöfnunar (sjá nánar hér að neðan).
  2. Að auki eiga þeir félagsmenn sem vinnuveitendur greiða sérstaklega af í sjóðinn rétt á viðbótarstyrk (sjá nánar hér að neðan).

Grunnréttur og uppsöfnun

Frá 1. janúar 2007 eiga allir félagsmenn, sem greitt hafa félagsgjald í 6 mánuði, grunnstyrk að upphæð 50.000 kr. Að auki safna þeir réttindum sem nema 20% af félagsgjaldi sínu, í þrjú ár.

  1. Grunnréttur ásamt uppsöfnuðum rétti getur aldrei orðið hærri en 80.000 kr.
  2. Styrkir eru veittir til hvers kyns frístunda- og fagnáms.
  3. Réttur til styrkja fellur niður ef greiðslu félagsgjalds er hætt, nema að það sé vegna launamissis í námi eða vegna veikinda, slysa, sérstakra fría eða atvinnuleysis.
    Áunninn réttur helst í 3 ár eftir að félagsmaður er hættur störfum vegna aldurs eða örorku.

Viðbótarréttur
Einungis þeir félagsmenn VM sem vinnuveitandi greiðir sérstaklega af í fræðslusjóð eiga rétt á viðbótarstyrk. Miðað er við að greiðslur vinnuveitanda nemi 1% af heildarlaunum starfsmanns. Ef samið er um lægra hlutfall, skerðast styrkir hlutfallslega

Viðbótarstyrkur nemur kr. 35.000 á ári. Ef ekki er sótt um styrk eitt árið getur viðkomandi fengið tvöfalda þá upphæð árið á eftir.
Viðbótarstyrkurinn er ætlaður til fagnáms og starfsþróunar. Styrkhæf námskeið eru:

  1. Fagnámskeið IÐUNNAR Fræðslumiðstöðvar og Rafiðnaðarskólans.
  2. Tölvunámskeið hverju nafni sem þau nefnast.
  3. Námskeið/ráðstefnur um rekstur og stjórnun.
  4. Málanámskeið, þ.e. námskeið í erlendum málum og íslenskunámskeið hverskonar.
  5. Önnur námskeið sem metin eru styrkhæf.

Réttur til viðbótarstyrks stofnast þegar greiðslur byrja að berast frá vinnuveitanda og fellur niður þegar greiðslum vinnuveitanda vegna viðkomandi er hætt.

VM Fréttir

gudni | 07.02.12
Laugardaginn 4 febrúar hélt Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur verðlaunahátíð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Hátiðin er haldin til heiðurs þeim nýsveinum sem lokið hafa sveinsprófum á árinu 2011 með afburðaárangri. Fyrir próf í málmiðnaðargreinum hlutu þeir Finnur Einarsson rennismiður, Guðmundur Hinrik Gústafsson, rennismiður, Tyrfingur Sveinsson, vélvirki, og Smári H. Ragnarsson, vélvirki, verðlaunapening og viðurkenningarskjal.




Pistlar

gudmundur | 19.01.12

Forsendur kjarasamninga.

Eitt af þeim brýnu verkefnum sem verður að fara í með forgangi, er að skuldamálum einstaklinga og fjölskyldna verði lokið sem fyrst. Þeirri miklu óvissu sem þessir aðilar eru í verði eytt og þeir fái að vita sína stöðu. Það er best fyrir alla að komast á hreint borð með sín mál og geta hafið nýtt upphaf fram á við.

 

 

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli