Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Kjaranefnd sjómanna er fastanefnd sem starfar allt árið. Félagsstjórn skipar a.m.k. átta fulltrúa í kjaranefndina á fyrsta fundi í janúar ár hvert.Við skipan fulltrúa í nefndina skal gæta þess að þar eigi
sæti einstaklingar sem starfa eftir sem flestum kjarasamningum sem VM gerir vegna sjómanna. Starfsmenn félagsins á samningasviði skulu vera nefndinni til ráðuneytis.
Hlutverk kjaranefndar sjómanna í VM er að fjalla um sérstök hagsmunamál sjómanna og gera tillögur um þau til stjórnar. Fylgjast með kjörum sjómanna og eiga aðild að kjarasamningsgerð vegna sjómanna.
Nefndin gerir tillögur til stjórnar VM um heiðranir á sjómannadag, úthlutun Neistans og um fulltrúa í sjómannadagsráð.

Eftirtaldir eiga sæti í nefndinni:
Trausti Ingólfsson, Samskip
Ólafur Pálsson, Landhelgisgæslan
Bjarni Sveinbjörnsson, Hafrannsóknarstofnun
Guðmundur Helgi Þórarinsson,HB Grandi hf
Guðmundur Þ. Ragnarsson, Þorbjörn hf
Guðmundur Sigurvinsson, Hraðfrystihúsið Gunnvör hf
Heimir V. Pálmason, Rammi hf
Friðrik Björgvinsson, Ísfélag Vestmannaeyja
Valgeir Ómar Jónsson, HB Grandi hf
Ingibergur Magnússon, Vísir hf

Félagsmenn geta komið skilaboðum til nefndarinnar með ýmsum hætti t.d. með því að senda nefndinni tölvupóst á kjaranefnd@vm.is.



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli