Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Heimsóknir starfsmanna félagsins á vinnustaði, fundir á vinnustöðum og með fulltrúum vinnustaða á skrifstofu félagsins eru mikilvægur þáttur í tengslum við félagsmennina.

Félagið hefur ávallt verið í tengslum við fyrirtæki í málmiðnaði með ýmsum hætti, meðal annars með því að fara í vinnustaðaheimsóknir, til þess að kynna okkur verkefnastöðu fyrirtækisins og ekki hvað síst að heyra í okkar félögum.


Verkefni vinnustaðafunda og annarra heimsókna eru málefni sem snerta viðkomandi vinnustað, kosning trúnaðarmanns, aðbúnaðar, vinnutíma, launamál o.fl.

Beiðni um heimsókn á vinnustað

Heimsókn í Össur

Heimsókn í Véla- og skipaþjónustuna Framtak

VM Fréttir

gudni | 07.02.12
Laugardaginn 4 febrúar hélt Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur verðlaunahátíð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Hátiðin er haldin til heiðurs þeim nýsveinum sem lokið hafa sveinsprófum á árinu 2011 með afburðaárangri. Fyrir próf í málmiðnaðargreinum hlutu þeir Finnur Einarsson rennismiður, Guðmundur Hinrik Gústafsson, rennismiður, Tyrfingur Sveinsson, vélvirki, og Smári H. Ragnarsson, vélvirki, verðlaunapening og viðurkenningarskjal.




Pistlar

gudmundur | 19.01.12

Forsendur kjarasamninga.

Eitt af þeim brýnu verkefnum sem verður að fara í með forgangi, er að skuldamálum einstaklinga og fjölskyldna verði lokið sem fyrst. Þeirri miklu óvissu sem þessir aðilar eru í verði eytt og þeir fái að vita sína stöðu. Það er best fyrir alla að komast á hreint borð með sín mál og geta hafið nýtt upphaf fram á við.

 

 

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli