Framhaldsskólar
Heimsóknir starfsmanna félagsins í framhaldsskóla er mikilvægur þáttur í kynningu á félaginu. Reynt er að heimsækja alla skóla sem kenna vélstjórn eða véltæknigreinar árlega og stærri skóla við upphaf haust og vorannar.
Markmið heimsóknanna er að kynna fyrir nemendum í vélstjórnar- og málmtæknigreinum hlutverk félagsins og hvernig það kemur að menntunar-, öryggis- og kjaramálum félagsmanna.
Grunnskólar
Boðið hefur verið upp á heimsóknir í grunnskóla landsins auk þess sem félagið hefur lagt nemendum lið við að komast í starfskynningu hjá félagsmönnum.