Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Orlofshús og -íbúðir VM

 

Skoða lausar vikur

 

Skoða orlofsblað VM

 

Nú á Orlofssjóður VM úrval íbúða og orlofshúsa um allt land:

    Vesturland

    2 heilsárshús í Svignaskarði í Borgarfirði. Húsin eru með heitum pottum.

    Vestfirðir

    Hlutur í sumarhúsi í Vatnsfirði, rétt við Flókalund. Eingöngu sumarleiga.

    Norðurland

    Þrjár íbúðir á Akureyri

    Eitt heilsárshús á Illugastöðum í Fnjóskadal, um 40 km austan við Akureyri. Heitur pottur er við húsið. Vetrarleiga er hjá umsjónarmönnum.

    Austurland

    Eitt heilsárshús á Úlfsstöðum og annað á Einarsstöðum á Fljótsdalshéraði, miðja vegu milli Egilsstaða og Hallormsstaða.

    Eitt heilsárshús í Klifabotni í Lóni í Lónsöræfum, um 30 km austan við Höfn í Hornafirði

    Suðurland

    Tvö heilsárshús við Kirkjubæjarklaustur.

    Eitt hús í sumarleigu í Hraunborgum í Grímsnesi. Heitur pottur er við húsið.

    Tvö heilsárshús á Syðri Reykjum í Bláskógabyggð, 14 km austan við Laugarvatn. Heitir pottar eru við húsin.

    Fjögur sérhús og 10 raðhús af tveimur stærðum á Laugarvatni. Heitir pottar eru við sum húsin og sundlaug, heitir pottar og gufubað á svæðinu. Stæði fyrir fimm felli- eða hjólhýsi með aðgengi að rafmagni og snyrtingu auk aðgengis að sameiginlegu svæði við sundlaugina.

    Þrjú heilsárshús í Ölfusborgum, rétt austan við Hveragerði. Heitir pottar eru við húsin.

    Tvær íbúðir í Reykjavík.

    Orlofsíbúðir til leigu á Spáni.

    Sjá www.spann.is

     

    Að gefnu tilefni:

    Gæludýr eru bönnuð í öllum orlofshúsum VM nema húsi nr. G 5 á Kirkjubæjarklaustri !

    Biðja þarf um það hús sérstaklega við bókun eða panta á netinu.

     

    Niðurstöður óformlegra kannana - gæludýr í orlofshúsum

    Í óformlegri könnun um viðhorf félagsmanna til gæludýrahalds í orlofshúsum kom í ljós að 63% voru á móti því að leyfa gæludýr í orflofshúsum, 32% voru því fylgjandi og 5% var alveg sama.



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli