Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Hlutverk VM er m.a. að styrkja atvinnustöðu félagsmanna, efla menntun þeirra og símenntun, bæta lífskjör og félagslegt örggi ásamt því að veita góða þjónustu á fleiri sviðum.

  • VM - er með sterkan styrktar- og sjúkrasjóð sem greiðir hlutfall af launum í langvarandi veikindum og styrkri félagsmenn vegna fyrirbyggjandi aðgerða og mikils heilsutengds kostnaðar.
  • VM - á og rekur fjölda orlofshúsa og -íbúða víða um land. Aðgangur félagsmanna að þessum orlofskostum er niðurgreiddur.
  • VM - svarar daglega fjölda fyrirspurna vegna launa- og réttindamála félagsmanna.
  • VM - leiðbeinir og aðstoðar félagsmenn daglega varðandi atvinnu-, öryggis- og launamál.
  • VM - heimsækir vinnustaði félagsmanna.
  • VM - heimsækir skóla sem kenna vélstjórn og málmtækni.
  • VM - leggur áherslu á menntun og niðurgreiðir eða styrkir félagsmenn til að sækja námskeið.
  • VM - leggur áherslu á að koma gagnlegum faglegum upplýsinum til félagmanna

 

VM Fréttir

halldor | 03.09.10
Stjórnin furðar sig á fjárfestingum Framtakssjóðs Íslands og telur að til greina komi að lífeyrissjóðir félagsmanna VM dragi sig út úr sjóðnum.




Pistlar

katrín | 28.06.10

Hefur eitthvað breyst?

Eitt sinn heyrði ég máltæki sem heimfært var upp á Færeyinga. „Nógur er tíminn, alltaf kemur meira af honum“ þessi staðreynd er ein af þeim fáu sem við getum gengið út frá í dag og einnig því að reikningarnir koma örugglega inn um lúguna með sínum eindögum.

 

 

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli