VM er landsfélag sem hefur innan sinna raða velmenntaða einstaklinga á sviði málmtækni, véltækni, raftækni og stjórnunar.
Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar í íslensku og alþjóðlegu samfélagi í náinni framtíð, öll tækniþróun er hröð og áherslur breytast hratt; eins og stóraukin áhersla á umhverfismál sýnir. Þá er mikilvægt að til staðar sé stöðug og markviss endurmenntun og góð grunnmenntun sem gerir þeim sem hennar njóta kleift að tileinka sér ýmis sértæk fræði sem krafa er gerð um þekkingu á.
Hér er hlutverk VM viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir, þar sem kortleggja þarf aukna fræðslu vegna nýrra og breyttra starfa okkar manna. Auk þess þarf að vinna að breytingum á námi og námsframboði fylgi stjórnvalda og fá fagskóla og símenntastofnanir til að breyta námsframboðinu í takt við þarfir markaðarins hverju sinni.
Íslenskt samfélag, er stöðugt að springa meira og meira út og þróast og þroskast í óræðar áttir og skapar þegnum sínum þannig tækifæri til aukins þroska og fjölbreyttari atvinnustarfsemi. Breytingar næstu ára og áratuga munu renna styrkari stoðum undir íslenskt samfélag sem byggist á tækni, þekkingu og færni á flestum sviðum, ef við göngum í takt við breytingarnar, og að því mun VM róa öllum árum.