Kynningarbréf eða fylgibréf henta vel til að lýsa einstaklingi á stuttan en persónulegan hátt og gefa vísbendingu um ástæður þess að sótt er um tiltekið starf. Megin tilgangurinn er að vekja eftirtekt og áhuga ráðningaraðila svo hann fái áhuga á að hitta sendanda. Mikilvægt er að vanda gerð kynningarbréfsins og gæta þess að það verði ekki endurtekning á því sem stendur í ferilskrá heldur gefi persónulegri mynd af umsækjanda og hæfileikum hans.
Um uppbyggingu og framsetningu kynningarbréfs
- Stílaðu bréfið á ákveðinn einstakling.
- Vandaðu málfar og stafsetningu.
- Gættu þess að það komi skýrt fram hvaða starf þú ert að sækja um og hvers vegna.
- Segðu frá því hvaða reynsla ætti að nýtast í umræddu starfi og hvað mælir með þér.
- Láttu það koma fram hver markmið þín og eiginleikar eru.
Dæmi um kynningarbréf
Gátlisti fyrir kynningarbréf
- Hefur einhver lesið kynningarbréfið vandlega yfir?
- Er kynningarbréfið á góðri íslensku og villulaust?
- Er kynningarbréfið stílað á ráðningaraðila?
- Vekur kynningarbréfið forvitni og áhuga?
- Endurspeglar kynningarbréfið áhuga þinn á starfinu eða fyrirtækinu?
- Er beðið um viðtal í lokin?
- Er kynningarbréfið á einni blaðsíðu?
- Ef umsóknin er trúnaðarmál, er það þá tekið fram?
- Eru upplýsingar um hjálögð gögn með kynningarbréfi?