Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Sá sem bíður eftir draumastarfinu getur þurft að bíða lengi!

Þótt atvinnuleit virðist oft flókin þá er hægt að nálgast vinnuveitendur á markvissan hátt og eftir mismunandi leiðum.

Fyrsta skrefið - Undirbúningur

Hverjir eru styrkleikar mínir og veikleikar?

  1. Hvað vil ég? / Á hverju hef ég áhuga?
  2. Hvar munu hæfileikar mínir njóta sín? / Hvers konar starf hentar mér?
  3. Hvert er markmið mitt á vinnumarkaði?

Þegar þessum spurningum hefur verið svarað ætti svarið við tveimur grundvallarspurningum að liggja fyrir:

  1. Í hvers konar umhverfi mun ég helst dafna og ná árangri?
  2. Í hvers konar umhverfi vil ég helst starfa?

Annað skrefið - Leiðir fyrirtækja í ráðningarmálum

Oft er talað um innri og ytri ráðningar. Innri ráðningar eru stöðuhækkanir, tilfærsla innan fyrirtækis, auglýsingar innan fyrirtækis, endurráðningar (fyrrverandi starfsmenn ráðnir aftur) og skyldmenna- og/eða vinaráðningar. Við ytri ráðningar eru notaðar ráðningarstofur, ábendingar, óumbeðnar umsóknir, auglýsingar, menntastofanir (útskriftarnemar ráðnir), verkefnaráðningar og auglýsingar á internetinu.

Hafðu samband við ráðningarskrifstofur og kannaðu hvort einhver áhugaverð störf eru í boði, sérstaklega í þeim geira sem þú hefur áhuga á að vinna í. Skoðaðu heimasíður óskavinnuveitandans og aflaðu þér upplýsinga eftir öllum leiðum t.d. með því að hafa samband við starfsmann hjá fyrirtækinu sem þú þekkir eða kannast við eða spjalla við viðskiptavini fyrirtækisins eða aðra sem þekkja til.

Þriðja skrefið - Umsóknin

Þegar þú hefur áttað þig á sjáfum þér, óskum þínum, hæfileikum og áhugasviðum, þá þarftu að kynna þér leiðir óskafyrirtækjanna í ráðningarmálum. Svo er að sækja um í samræmi við niðurstöðurnar; viðtal hjá starfsmannastjóra, formleg umsókn lögð inn hjá þeim sem þú hefur áhuga á að vinna fyrir og/eða skráning hjá ráðningarstofum.

Mundu

Talið er að einungis 35% allra lausra starfa sé auglýstur í fjölmiðlum. Í hin 65%  ráða fyrirtækin beint eða í gegnum ráðningarstofur án auglýsinga.

Gögn þessi eru byggð á bókinni Frá umsókn til atvinnu eftir Jón Birgi Guðmundsson


Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli