Kjaramál
Kjarasamningar
VM leggur áherslu á að aðstoða félagsmenn við gerð vinnustaðasamninga og persónubundinna samninga. Auk þess er lögð megináhersla á að aðstoða og leiðbeina einstaklingum við allt sem varðar starfsferilþróun og atvinnuumsóknir.
VM leggur megináherslu á að vinna að kjaramálum félagsmanna á fjölbreyttan og faglegan hátt. Félagið mun annast gerð kjarasamninga, sem eru um 25 talsins, og verða þeir unnir með sama sniði og verið hefur.
Til að annast kjarasamninga verða skipaðar samninganefndir eins og lög gera ráð fyrir. Fulltrúar verða valdir af þeim sem kjarasamningarnir gilda fyrir. Til aðstoðar samninganefndum verða starfsmenn félagsins.
Starfsmenn VM munu fylgjast vel með stöðu og þróun kjaramála.
Kjaranefnd
Samningar sjómanna verða í höndum sérstakrar kjaranefndar sjómanna. Fastanefndin mun starfa allt árið skipuð fulltrúum sjómanna í stjórn félagsins, formanni félagsins og öðrum fulltrúum sjómanna úr röðum félagsmanna.
– Kjaranefnd annast kjarasamninga vegna sjómanna.
– Kjaranefnd nýtur aðstoðar starfsmanns félagsins sem er sérfræðingur í málefnum vélstjóra og sjávarútvegsins.
Á sama hátt verður unnið að öðrum kjarasamningum félagsmanna, þ.e. í samninganefndum og með aðstoð.
Kjarakannanir
VM mun standa fyrir árlegri kjarakönnun meðal félagsmanna. Með könnunum þessum fást verðmætar upplýsingar um markaðslaunin og hvernig þau dreifast. Þannig geta félagsmenn fylgst með launaþróun á vinnumarkaði og starfsmenn og samninganefndir VM haft kannan- irnar til að styðja sig við undirbúning samninga.
Helstu kjarasamningar VM
Kjarasamningar VM eru nú 25 talsins og ná til fjölmargra sviða og starfshópa. Launakerfi samninganna er mismunandi eftir aðstæðum. Í sumum er samið um fast launakerfi, aðrir eru með samning um launatryggingu og hlut af aflaverðmæti og í þriðja lagi eru svo samningar um lágmarkslaun en í þeim er einnig gert ráð fyrir sérstökum vinnustaðasamningum og/eða persónulegum launum umfram lágmarkslaunin. VM er með kjarasamninga við marga viðsemjendur og í sumum tilvikum fleiri en einn samning við sama aðila. Félagið er m.a. með samninga við:
– Alcan vegna málmtæknimanna.
– Faxaflóahafnir
– Íslenska ríkið vegna vélstjóra og málmtæknimanna.
– Kerfóðrun vegna málmtæknimanna.
– Landsnet vegna vélstjóra.
– Landsvirkjun vegna málmtæknimanna og vélstjóra.
– LÍÚ vegna vélstjóra.
– Launanefnd sveitarfélaga vegna málmtæknimanna og vélstjóra.
– Orkuveita Reykjavíkur vegna vélstjóra og málmtæknimanna.
– RARIK vegna vélstjóra.
– Samtök atvinnulífsins vegna vélstjóra og vélfræðinga hjá Hitaveitu Suðurnesja, Orkubúi Vestfjarða, á kaupskipum og sanddæluskipum.
– Málmtæknimanna í málmiðnaði.
– Málmtæknimanna við virkjanaframkvæmdir.
– Selfossveitur vegna málmtæknimanna.
– Strætó vegna málmtæknimanna.
– Vélamiðstöðin vegna málmtæknimanna.